Icelandic post about me in SD
Jæja, þá er ég kominn til San Diego. Allt gekk vel á leiðinni nema að lögreglan á flugvellinum í Minneapolis var ekki á því að sleppa mér strax inn í landið. Þau vildu fá að vita hvað ég hafði verið að gera hérna í desember og hve lengi ég hafi verið hérna, síðan vildu þau fá að vita um allt afhverju ég ætlaði að vera hérna í 3 mánuði. Þeim þótti það vera frekar langur tími fyrir ástæðuna "pleasure". Á endanum komst ég ekki hjá því að gefa upp að ég ætlaði að giftast hérna og gaf þeim upp símanúmerið heima hjá Marisu til þess þau gætu fengið allt saman staðfest. Marilyn (móðir Marisu) upplýsti hver pabbinn var þannig að það auðveldaði allt til muna þannig að þau óskuðu mér góðs gengis með allt saman.
Ég er ekki kominn með vinnu ennþá en vonandi reddast að bráðlega. Ég hef verið að hjálpa mikið til í garðinum, aðallega við að pússa og mála glugga, lista undir þakið, útihúsgögn o.fl. Það er ekki á hverjum degi sem ég er með dekkri lit á handleggjunum en Marisa en sú er raunin í dag. Að vísu er hluti litarins rauður en það er allt í lagi þar sem þetta er þannig rauður litur sem verður mjög svo fagur og brúnn á morgunn.
Ég keypti mér fartölvu um helgina, 13" MacBook. Hún er algjör snilld að sjálfsögðu. Þar sem að Marisa hefur þann vanann a að nefna alla svona hluti með nafni gáfum við tölvunni nafnið Michael. Upphafsstafurinn í nafninu og heitið á tölvunni þarf að vera sá sami. Ef þið viljið fræðast meira um tölvuna tékkið þá endilega á www.apple.com. Þetta er mið-týpan.

Ég er búinn að sjá nokkra staði síðan ég kom hingað. Um helgina fórum við Marisa í miðbæ San Diego. Það var frekar magnað. Það var gott veður að vanda og Mexíkanar voru hér og þar að spila flamengo djazz. Í síðustu viku fórum við með ömmu Marisu í siglingatúr ásamt annarri fjölskyldu sem er skyld þeim. Amman var með allt á hreinu og stjórnaði okkur hin af mikilli snilld. Hún lét okkur einnig taka fullt af myndum af sér á einnota myndavél en hún er nýkomin með nýjan kærasta. Maður hennar lést í haust. Við Marisa fórum einnig á ströndina í síðustu viku í La Jolla, í bænum sem við munum giftast. Við fórum í bíó um helgina með bestu vinkonu Marisu, Shawna, og kærasta hennar. Við kíktum einnig aðeins heim til hans og ég verð að segja að ég hef aldrei séð jafn fullkomið hús á æfinni. Mamman er víst alveg kreisí. Það er ekki til ryk í húsinu og þetta er það alstílhreinasta heimili sem augu mín hafa orðið vitni að.
Ég bý í treiler sem er staðsettur á bílaplaninu hjá þeim. Það er bara nokkuð kúl. Ég gæti alveg vel hugsað mér að búa í svona hjólhýsi svo lengi sem ég á engin börn. Klósetttankurinn fylltist um helgina en því var reddað með því að grafa holu fyrir utan og dæla allt saman ofan í jörðina. Ég hef einnig verið í smá vandræðum með maurafaraldri en kippa því í lag með eitri og læti.
Það er mjög áhugavert að vera hérna og þetta er klárlega ný reynsla fyrir mig sem ég ætla að njóta eins og ég get. Ég held að ég sé að uppgötva að ég get alveg hugsað mér að búa annarsstaðar en í bæ/borg, einhversstaðar í burtu frá öllu stressi og veseni.

7 Comments:
WOW! your blog looks AWESOME! Somebody amazing must have spent time to make it look good! *wink*
Blessaður, gaman að heyra frá þér. Ég að vinna í álverinu um þessar mundir en svo fer ég vestur til Miami, líklega þann 16. ágúst. Svo við sjáumst líklega ekkert fyrr en næsta vor.
Kær kveðja og lifi kærleikurinn!

In other words...
my sentiments exactly!
Mom (Grace), ég vissi ekki að þú kynnir íslensku! Did I teach you "kær kvðja og lifi kærleikkurinn"?
I think a lot of people are waiting for an update :) plz update ;D
En yfir á Íslenskuna...það væri gaman að sjá eitthvað meira á blogginu þínu
allir biðja að heilsa héðan
why is everyone allowed to comment except me jon?! i will get you for this!!!
YES IT WORKED
okay i won't get you for it.
Post a Comment
<< Home